Jose Mourinho þjálfari Manchester United hefur gefið í skyn að hann gæti hugsað sér að selja leikmenn frá liðinu þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar.
Henrikh Mkhitaryan og Luke Shaw eru meðal leikmanna sem hafa verið orðaðir burt frá félaginu.
Mourinho segir að hann muni hlusta á tilboð í þá leikmenn sem vilja yfirgefa Old Trafford en bara fyrir rétt verð.

„Allir leikmenn eru með sinn verðmiða. Ef leikmaður er óánægður og vill fara frá félaginu munum við hlusta á þá beiðni fyrir rétt verð. Eins og gerðist með Memphis Depay og Morgan Schneiderlin."
Athugasemdir