Arsenal leiðir 1-0 gegn Newcastle í leik sem nú stendur yfir í deild þeirra bestu á Englandi, ensku úrvalsdeildinni.
Markið skoraði Þjóðverjinn Mesut Özil og það er ekki hægt að segja annað en að það hafi verið stórglæsilegt.
Boltinn datt fyrir Özil sem tók hann á lofti og smellhitti hann. Markvörður Newcastle átti engan möguleika á að gera eitthvað til þess að koma í veg fyrir að boltinn endaði í markinu.

Smelltu hér til að sjá markið.
Phil Neville, fyrrum leikmaður Manchester United og Everton, var fljótur að tjá sig um markið á Twitter. „Þvílíkt mark frá Mesut Özil. Kaupu hann Jose," skrifar Neville. Hann er að biðja Jose Mourinho, stjóra Man Utd, að kaupa Özil.
What a goal from @MesutOzil1088 sign him Jose
— Philip Neville (@fizzer18) December 16, 2017
Athugasemdir