Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. desember 2017 15:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Segir að Andrew Robertson minni sig á Beckham
Mynd: Getty Images
Fyrirgjafir Andrew Robertson minna Phil Babb, fyrrum leikmann Liverpool, á fyrirgjafir David Beckham.

Hinn 23 ára gamli Robertson var keyptur til Liverpool í sumar fyrir 8 milljónir punda frá Hull City og hefur hingað til notað þau tækifæri sem hann hefur fengið vel.

„Hann hefur verið frábær. Hann hefur mikil gæði á vinstri vængnum og hann skapar fullt af færum," sagði Babb þegar hann ræddi við sjónvarpsstöð Liverpool um Robertson.

„Ég er mikill aðdáandi hans, hann hefur orku, hann er góður á boltanum og ég hef áður nefnt þessar fyrirgjafir hans - hann setur boltann inn í teiginn eins og Beckham var vanur að gera. Það er mjög erfitt að verjast fyrirgjöfum hans."

„Hann verður að halda áfram að nýta tækifæri sín."
Athugasemdir
banner
banner
banner