Borussia D. 2 - 1 Hoffenheim
0-1 Marc Uth ('21 )
1-1 Pierre Emerick Aubameyang ('63 , víti)
2-1 Christian Pulisic ('89 )
0-1 Marc Uth ('21 )
1-1 Pierre Emerick Aubameyang ('63 , víti)
2-1 Christian Pulisic ('89 )
Dortmund er að komast á skrið. Liðið hefur nú unnið tvo leiki í þýsku úrvalsdeildinni undir stjórn Peter Stöger, en hann var ráðinn á dögunum eftir að Peter Bosz var rekinn.
Leikurinn í dag, sem var gegn Hoffenheim, byrjaði ekki vel fyrir Dortmund því Marc Uth kom gestunum yfir.
Staðan var 1-0 framá 63. mínútu en þá jafnaði Pierre-Emerick Aubameyang úr vítaspyrnu. Hinn efnilegi Christian Pulisic skoraði svo sigurmark þeirra gulklæddu þegar lítið var eftir.
Dortmund komst upp fyrir Hoffenheim með sigrinum og er núna í þriðja sæti. Hoffenheim er í sjöunda sætinu.
Athugasemdir