Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. janúar 2018 12:00
Magnús Már Einarsson
Chelsea reynir að krækja í Palmieri
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur spurst fyrir um Emerson Palmieri vinstri bakvörð Roma en Sky á Ítalíu segir frá þessu.

Roma er tilbúið að selja Palmieri fyrir um það bil 20 milljónir punda.

Hinn 23 ára gamli Palmieri er sagður efstur á óskalista Antonio Conte stjóra Chelsea.

Sjálfur er Palmieri sagður spenntur fyrir því að fara til Chelsea og vinna með Conte.

Palmieri er Brasilíumaður en hann hefur leikið með Roma síðan árið 2015.
Athugasemdir
banner
banner