Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 17. janúar 2018 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England í dag - Nær Chelsea að skora?
Chelsea hefur ekki skorað mikið að undanförnu. Koma mörkin í kvöld?
Chelsea hefur ekki skorað mikið að undanförnu. Koma mörkin í kvöld?
Mynd: Getty Images
Það verða þrír leikir endurspilaðir í enska FA-bikarnum í kvöld og munu þrjú úrvalsdeildarlið koma við sögu.

Sjónvarpsleikurinn í kvöld er á Stamford Bridge þar sem Chelsea fær Norwich í heimsókn. Fyrri leikurinn á heimavelli Kanarífuglanna endaði með markalausu jafntefli.

Chelsea hefur átt í vandræðum með að skora fótboltamörk að undanförnu en þau gætu dottið inn í kvöld.

Swansea fær topplið Championship-deildarinnar, Wolves, í heimsókn og Bournemouth mætir Will Grigg og félögum í Wigan.

Leikir kvöldsins:
19:45 Swansea - Wolves
19:45 Chelsea - Norwich (Stöð 2 Sport)
19:45 Wigan - Bournemouth
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner