Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 17. janúar 2018 22:49
Gunnar Logi Gylfason
Enski bikarinn: Chelsea áfram eftir vítaspyrnukeppni
Enduðu leikinn með 9 leikmenn inni á vellinum
Batshuayi fagnar marki sínu í kvöld
Batshuayi fagnar marki sínu í kvöld
Mynd: Getty Images
Leikur Chelsea og Norwich fór alla leið í vítaspyrnukeppni eftir að Norwich jafnaði metin á 94. mínútu.

Chelsea hefur gengið illa að undanförnu og hafa ekki enn unnið leik á þessu ár, allir leikir þeirra hafa endað með jafntefli. Það sama var uppi á teningnum eftir rúmar 90 mínútur og þurfti því að grípa til framlengingar.

Englandsmeistararnir í Chelsea skoruðu í fyrsta skipti síðan 3.janúar þegar Michy Basthuayi skoraði eftir sendingu frá Kenedy. Norwich átti skot í stöng stuttu seinna en allt leit út fyrir sigur Chelsea þangað til á 94. mínútu þegar hinn 19 ára gamli Jamal Lewis jafnaði metin fyrir Norwich með flottum skalla.

Chelsea sótti mun meira í fyrri hálfleik framlengingarinnar en án árangurs og vildi einnig fá víti þegar þeir töldu að brotið hefði verið á Willian inn í vítateig. Dómarinn var ekki á sama máli og gaf Willian gult spjald.

Í seinni hálfleik framlengingarinnar urðu liðsmenn Chelsea fyrir áfalli þegar Pedro fékk sitt annað gula spjald, eftir að hafa fengið gult fyrir leikaraskap, og þar með rautt á 117. mínútu.

Það var ekki nóg þar sem Morata fékk gult fyrir dýfu inn í teig eftir 120 mínútna leik. Hann mótmælti því harðlega og uppskar annað gult og Chelsea menn enduðu leikinn með 9 menn inn á.

Norwich átti síðasta færi framlengingarinnar en Caballero varði vel og þar með þurftu liðin að fara í vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.

Chelsea skoraði úr öllum sínum vítum í vítaspyrnukeppninni en Caballero varði fyrsta vítið hjá Norwich. Það var nóg og er Chelsea komið í næstu umferð þar sem þeir spila gegn Newcastle.

Chelsea 1 - 1 Norwich
1-0 Michy Batshuayi ('55)
1-1 Jamal Lewis ('94)
Rauð spjöld: Pedro ('117), Alvaro Morata ('120)

Vítaspyrnukeppnin
1-0 Willian skorar fyrir Chelsea
1-0 Caballero ver frá Oliveira
2-0 Luiz skorar fyrir Chelsea
2-1 Maddison skorar fyrir Norwich
3-1 Azpilicueta skorar fyrir Chelsea
3-2 Vrancic skorar fyrir Norwich
4-2 Kante skorar fyrir Chelsea
4-3 Murphy skorar fyrir Norwich
5-3 Hazard skorar fyrir Chelsea sem fer áfram í næstu umferð!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner