mið 17. janúar 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Moyes: Ekkert heyrt frá Chelsea með Carroll
Andy Caroll á spjalli.
Andy Caroll á spjalli.
Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri West Ham, segist ekkert hafa heyrt frá Chelsea um möguleg kaup á framherjanum Andy Carroll. Undanfarna daga hefur Carroll verið orðaður við Chelsea.

„Þeir hafa ekki haft samband við mig og ef þeir hafa rætt við einhvern annan þá veit ég ekki af því," sagði Moyes eftir sigur á Shrewsbury í enska bikarnum í gær.

„Í augnablikinu er Andy Carroll einn af mínum hópi. Ég vil bæta við leikmönnum en ekki missa leikmenn. Ég veit ekkert um þetta. Það hafa verið miklar sögusagnir varðandi lán en eftir því sem ég best veit hefur ekkert komið frá Chelsea."

„Í augnablikinu er Andy meiddur á ökkla og við vonumst til að hann jafni sig fljótt á því og byrji að æfa aftur fljótlega."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner