Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. janúar 2018 22:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rétt hjá Messi - Þarf að æfa sig í vítaspyrnum
Mynd: Getty Images
Lionel Messi misnotaði vítaspyrnu þegar Barcelona tapaði 1-0 gegn nágrönnum sínum í Espanyol í kvöld. Leikurinn var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum spænska Konungsbikarsins.

Þetta er alls ekki fyrsta vítaspyrnan sem hann hefur klúðrað á ferlinum, þetta er sú 23. í röðinni.

Messi hefur tæplega klúðrað 25% af þeim vítspyrnum sem hann hefur tekið á ferli sínum. Á þessu tímabili hefur hann klúðrað þremur af þeim sex spyrnum sem hann hefur tekið.

Messi veit það sjálfur að hann þarf að gera betur í vítaspyrnum en í viðtali á dögunum sagði hann:

„Ég vil vera fullkominn og það eru ennþá hlutir sem ég get bætt í leik mínum. Hvaða hlutir? Vítaspyrnur, ég verð að æfa þær meira," sagði þessi ótrúlegi knattspyrnumaður.

Sjá einnig:
Messi: Ég þarf að æfa vítaspyrnur









Athugasemdir
banner
banner