Espanyol 1 - 0 Barcelona
1-0 Óscar Melendo ('88)
1-0 Óscar Melendo ('88)
Katalóníuliðin Espanyol og Barcelona mættust í 8-liða úrslitum spænska bikarsins og urðu úrslitin óvænt.
Það var aðeins eitt mark skorað en það gerði Óscar Melendo fyrir heimamenn í Espanyol þegar 88 mínútur voru liðnar. Fyrr í síðari hálfleiknum hafði Lionel Messi fengið tækifæri til að skora úr vítaspyrnu en Diego Lopez varði frá honum.
Nokkrir lykilmenn í liði Barcelona, eins og t.d. Luis Suarez og Jordi Alba byrjuðu ekki en þó spilaði Messi allan leikinn. Suarez kom inn á sem varamaður þegar um klukkutími var liðinn.
Lokatölur urðu 1-0 fyrir Espanyol sem fer með forystu í seinni leikinn á Nývangi sem er í næstu viku.
Barcelona er ríkjandi bikarmeistari.
Sjá einnig:
Spánn: Sevilla með sigur á Atletico Madrid
Athugasemdir