Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. janúar 2018 12:30
Elvar Geir Magnússon
Swansea hefur áhuga á Andre Silva
Andre Silva hefur ekki fundið sig hjá AC Milan.
Andre Silva hefur ekki fundið sig hjá AC Milan.
Mynd: Getty Images
Andre Silva, sóknarmaður AC Milan, er orðaður við Swansea í ítölskum fjölmiðlum.

Swansea er í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og fáir sem hafa trú á því að liðið geti haldið sér uppi.

Andre Silva er portúgalskur og stjóri Swansea er landi hans, Carlos Carvalhal.

Andre Silva er 22 ára og kom til AC Milan síðasta sumar fyrir 38 milljónir evra. Hann hefur ekki náð að fóta sig almennilega í ítalska boltanum og ekki tekist að skora í tólf deildarleikjum.

AC Milan er í ellefta sæti ítölsku deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner