Jose Mourinho hefur stýrt stórliðum eins og Real Madrid, Chelsea, Manchester United og Inter. En hver eru bestu leikmannakaup hans á stjóraferlinum? Goal.com setti saman þennan topp tuttugu lista.
#20 Michael Ballack - 2006 - Bayern München til Chelsea - Frjáls sala: Hafnaði stórliðum til að spila undir Mourinho. Vann alla titlana á Englandi og spilaði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2008.
#19 Maciel - 2001 - Volta Redonda til Uniao Leiria - 90 þúsund pund: Áhugaverð velgengni Uniao Leiria gerði það að verkum að Mourinho var ráðinn til Porto. Brasilíski framherjinn Maciel reyndist happakaup.
#18 Paul Pogba - 2016 - Juventus til Manchester United - £89 milljónir: Verðmiðinn var hár en Pogba býr yfir mögnuðum fótboltahæfileikum og enginn talar um verðið í dag.
#17 Salomon Kalou - 2006 - Feyenoord til Chelsea - £9m: Var bara 20 ára þegar Mourinho fékk hann í úrvalsdeildina. Hann vann allt sem hægt var að vinna á Englandi og einnig Meistaradeildina.
#16 Maniche - 2002 - Benfica til Porto - Frjáls sala: Einn fyrsti leikmaðurinn sem Mourinho sótti til Porto. Var lykilmaður í liðinu sem vann Meistaradeildina 2004.
#15 Cesc Fabregas - 2014 - Barcelona til Chelsea - £27m: Smellpassaði samstundis í lið Chelsea og hefur unnið tvo Englandsmeistaratitla, eitthvað sem hann vann ekki á átta tímabilum hjá Arsenal.
#14 Angel Di Maria - 2010 - Benfica til Real Madrid - £29,7m: Vann Meistaradeildina með Real og meira en tvöfaldaði verðmiðann þegar hann var seldur til Manchester United 2014.
#13 Michael Essien - 2005 - Lyon til Chelsea - £24,4m: Var í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum og varð fyrsti Afríkumaðurinn til að vera valinn leikmaður ársins hjá Chelsea.
#12 Derlei - 2002 - Uniao Leiria til Porto - 405 þúsund pund: Brasilíski sóknarmaðurinn var lykilmaður þegar Porto lyfti Evrópudeildarbikarnum 2004 og Meistaradeildarbikarnum ári síðar.
#11 Sami Khedira - 2010 - Stuttgart til Real Madrid - £12.6m: Bestu ár þýska landsliðsmannsins komu undir stjórn Mourinho. Fagnaði mörgum titlum með Real Madrid.
#10 Paulo Ferreira - 2002 - Vitoria Setubal til Porto - £1.8m: Einn af traustustu þjónum Mourinho. Vann Meistaradeildina bæði með Porto og Chelsea.
#9 Ricardo Carvalho - 2004 - Porto til Chelsea - £20m: Varð lykilmaður í vörn Chelsea þegar liðið vann langþráðan Englandsmeistaratitil.
#8 Wesley Sneijder - 2009 - Real Madrid til Inter - £13.3m: Náði ekki að sýna sínar bestu hliðar gegn Real Madrid en blómstraði hjá Inter og hjálpaði til í að vinna Meistaradeildina.
#7 Benni McCarthy - 2003 - Celta Vigo til Porto - £3,15m: Skoraði 20 mörk í 23 leikjum á sínu fyrsta tímabili hjá Porto. Skoraði tvívegis þegar Porto sló Manchester United úr Meistaradeildinni.
#6 Zlatan Ibrahimovic - 2016 - PSG til Manchester United - Frjáls sala: Fólk kepptist um að tala um að Zlatan væri of gamall fyrir enska boltann en hann skoraði grimmt og hjálpaði United að vinna Evrópudeildina og deildabikarinn.
#5 Diego Milito - 2009 - Genoa til Inter - £22,2m: Varð markakóngur í ítölsku deildinni og skoraði bæði mörkin í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þegar Inter vann sína fyrstu þrennu.
#4 Diego Costa - 2014 - Atletico Madrid til Chelsea - £32m: Á öðru tímabili í endurkomu Mourinho til Chelsea var Costa geggjaður og skoraði 20 deildarmörk þegar Chelsea varð Englandsmeistari.
#3 Samuel Eto'o - 2009 - Barcelona til Inter - £40m & Zlatan: 53 mörk á tveimur tímabilum í ítölsku A-deildinni. Það þarf ekki að segja meira.
#2 Ashley Cole - 2006 - Arsenal til Chelsea - £5m & Gallas: Að margra mati besti vinstri bakvörður sem leikið hefur í ensku deildinni. Spilaði yfir 300 leiki á átta tímabilum hjá Chelsea.
Athugasemdir