Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. janúar 2018 21:30
Gunnar Logi Gylfason
West Ham vill fá leikmann Inter
Joao Mario gæti verið að fara frá Inter á láni
Joao Mario gæti verið að fara frá Inter á láni
Mynd: Getty Images
West Ham byrjaði tímabilið brösulega undir stjórn Slaven Bilić. Bilić var rekinn og David Moyes tók við. Gengi liðsins hefur batnað verulega undir hans stjórn á síðustu mánuðum.

Til að styrkja sig fyrir áframhaldandi átök í deildinni vill West Ham fá leikmann Inter Milan á láni.

Umræddur leikmaður er portúgalski miðjumaðurinn Joao Mario. Mario gekk til liðs við Inter frá Sporting Lisbon fyrir tæplega fjörutíu milljónir punda sumarið 2016. Það sumar var hann partur af landsliði Portúgals sem sigraði EM í Frakklandi.

Inter Milan vill ekki selja þennan 24 ára leikmann. Því horfa þeir til ensku úrvalsdeildarinnar og vona að hann fái nægan spiltíma þar en Mario hefur verið í aukahlutverki hjá Inter á þessu tímabili.

West Ham er í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner