fös 17. febrúar 2017 14:37
Magnús Már Einarsson
Guardiola veit ekki hversu lengi Jesus verður frá
Gabriel Jesus.
Gabriel Jesus.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segist ekki vita nákvæmlega hversu lengi Gabriel Jesus verður frá keppni.

Jesus hafði byrjað frábærlega hjá City áður en hann braut bein í fæti gegn Bournemouth á mánudaginn. Brasilíumaðurinn er búinn að fara í aðgerð en tímabilið er mögulega búið hjá honum.

„Fólk segir að hann verði frá í tvo til þrjá mánuði," sagði Guardiola á fréttamannafundi í dag.

Sergio Aguero kemur nú aftur í byrjunarlið Manchester City eftir að hafa dottið á bekkinn eftir góða byrjun Jesus.

„Þetta er ekki auðvelt fyrir leikmenn sem spila ekki. Sergio var mjög fagmannlegur og ég hef engar efasemdir um hann. Hann þarf að gera það sem hann hefur gert hingað til á ferlinum. Ekkert meira," sagði Guardiola.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner