Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. febrúar 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Haukar í æfingaferð til Wolfsburg
Haukar heimsækja Wolfsburg.
Haukar heimsækja Wolfsburg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýliðar Hauka í Pepsi-deild kvenna fara ótroðnar slóðir í æfingaferð sinni fyrir tímabilið.

Að þessu sinni mun kvennalið Hauka heimsækja stórliðið Wolfsburg í Þýskalandi, en með liðinu leikur landsliðsfyrirliðinn og Hauka-konan Sara Björk Gunnarsdóttir. Æfingaferðin verður í miðjum næsta mánuði.

„Ljóst er að um spennandi ferð er að ræða fyrir ungt og efnilegt Hauka-lið sem mun meðal annars æfa með varaliði Wolfsburg og spila æfingaleik. Einnig munu þjálfarar og starfsfólk Wolfsburg kynna æfinga-, og keppnisaðstöðu og undirbúning fyrir leiki," segir á vef KSÍ.

„Hluti af ferðinni verður síðan að sjá tvo heimaleiki í Wolfsburg, annars vegar við Darmstadt í Bundesligu karla og hins vegar leik Wolfsburg og Bayern Munchen sem er toppslagur í Bundesligu kvenna, en liðin verma tvö af þremur efstu sætum í deildinni."

„Mikil eftirvænting er meðal leikmanna Hauka enda ekki á hverjum degi sem leikmenn fá að heimsækja lið í heimsklassa. Skipulagning ferðarinnar hefur gengið mjög vel, þökk sé afar góðum móttökum af hálfu forráðamanna Wolfsburg."
Athugasemdir
banner
banner