HK hefur fengið varnarmanninn Ingiberg Ólaf Jónsson í sínar raðir fyrir Inkasso-deildina í sumar.
Hinn 21 árs gamli Ingiberg Ólafur er uppalinn hjá Breiðabliki en árið 2014 fór hann í Fram.
Hinn 21 árs gamli Ingiberg Ólafur er uppalinn hjá Breiðabliki en árið 2014 fór hann í Fram.
Eftir tvö og hálft ár hjá Fram fór Ingiberg í Fjarðabyggð í júlí í fyrra. Ingiberg spilaði níu leiki með Fjarðabyggð en náði ekki að hjálpa liðinu að bjarga sér frá falli úr Inkasso-deildinni.
Í vetur hefur Ingiberg æft með HK. Hann hjálpaði HK einnig að vinna B-deild Fótbolta.net mótsins á dögunum.
HK hefur einnig fengið þá Breka Barkarson og Zakarías Friðriksson í sínar raðir frá Breiðabliki en þeir gengu báðir upp úr 2. flokki síðastliðið haust.
HK hefur leik í Lengjubikarnum annað kvöld klukkan 21:00 þegar liðið mætir Þór í Boganum.
Athugasemdir