Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 17. febrúar 2017 10:42
Magnús Már Einarsson
Zlatan: Ég er eins og Indana Jones
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, segist vera Indiana Jones fótboltans.

Hinn 35 ára gamli Zlatan skoraði sautjándu þrennuna á ferli sínum þegar hann skoraði öll mörk Manchester United í 3-0 sigri á St. Etienne í Evrópudeildinni í gær.

Zlatan hefur verið mjög sigursæll á ferli sínum og hann á ennþá möguleika á þremur titlum með Manchester United á þessu tímabili þar sam liðið er í Evrópudeildinni, enska bikarnum sem og í úrsltum enska deildabikarsins.

„Allir titlar eru ótrúlegir fyrir mig. Ég hef unnið alls staðar þar sem ég hef komið og ef ég get unnið eitthvað hér þá verð ég mjög ánægður," sagði Zlatan.

„Fólk sem þekkir mig veit að ég hef spilað hjá mörgum félögum og alltaf reynt mitt besta. Hvert sem ég hef farið þar hef ég unnið svo ég er eins og Indiana Jones."
Athugasemdir
banner
banner
banner