NorthEast United 0 - 1 Kerala Blasters
0-1 Wes Brown ('28)
0-1 Wes Brown ('28)
Guðjón Baldvinsson var í byrjunarliði Kerala Blasters og lék allan leikinn þegar liðið bar sigur úr býtum gegn NorthEast United.
Guðjón var í byrjunarliðinu en á meðan byrjaði Dimitar Berbatov, fyrrum leikmaður Manchester United og Tottenham, á bekknum. Berbatov átti síðar eftir að koma inn á og var nálægt því að leggja upp mark fyrir títtnefndan Guðjón.
Eina markið í þessum leik gerði annar fyrrum leikmaður Manchester United, Wes Brown. Markið gerði hann með góðum skalla.
Lokatölur 1-0 og Kerala Blasters hefur ekki enn tapað síðan Guðjón kom til liðsins á láni frá Stjörnunni. Kerala Blasters er í fimmta sæti Indversku ofurdeildarinnar en efstu fjögur liðin fara í úrslitakeppni. Eins og er er Kerala Blasters einu stigi frá fjórða sætinu.
Hermann Hreiðarsson er aðstoðarþjálfari Kerala Blasters en David James, fyrrum landsliðsmarkvörður Englands, er þjálfari liðsins.
78' Berbatov gets the ball to the feet of Baldvinsson, who turns and shoots in the box! Rehenesh comes forward and makes a big save for the hosts!
— Indian Super League (@IndSuperLeague) February 17, 2018
NEU 0-1 KER#HeroISL #LetsFootball #NEUKER
Jacki with a beautiful ball to find Baldvinsson, but the striker just couldn't finish it!
— Indian Super League (@IndSuperLeague) February 17, 2018
Watch it LIVE on @hotstartweets: https://t.co/5FAmYYAcbL
JioTV users can watch it LIVE on the app. #ISLMoments #NEUKER #LetsFootball pic.twitter.com/rqa2E9OwfI
Athugasemdir