Udinese 0 - 2 Roma
0-1 Cengiz Under ('70 )
0-2 Diego Perotti ('90 )
0-1 Cengiz Under ('70 )
0-2 Diego Perotti ('90 )
Emil Hallfreðsson tók ekki þátt í leik Udinese og Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í dag vegna meiðsla.
Í fjarveru Emils tókst Udinese ekki að gera neinar rósir gegn öflugu liði Roma á þessum laugardegi.
Cengiz Under kom Roma á bragðið þegar 20 mínútur voru eftir. Under eða "tyrkneska undrið" hefur vakið athygli á þessu tímabili. Þessi tvítugi leikmaður hefur skorað tvö og lagt upp fjögur í síðustu þremur leikjum sínum með Roma.
Argentínumaðurinn Diego Perotti gerði út um leikinn í uppbótartímanum og lokatölur 2-0.
Roma er í þriðja sæti deildarinnar og Udinese í því tíunda.
Whoaaa what a goal from Roma’s Under, the Turkish Wonder!
— Tancredi Palmeri (@tancredipalmeri) February 17, 2018
4 goals and 2 assists in last 3 games from the 20 years old pic.twitter.com/DPbSPGdRqT
Athugasemdir