lau 17. febrúar 2018 19:10
Gunnar Logi Gylfason
Lengjubikarinn: Tobias hetja tíu Valsmanna
Tobias Thomsen gekk í raðir Valsmanna frá KR í vetur
Tobias Thomsen gekk í raðir Valsmanna frá KR í vetur
Mynd: Valur
Víkingur R. 1-2 Valur
1-0 Nikolaj Andreas Hansen (14')
1-1 Tobias Bendix Thomsen (24')
1-2 Tobias Bendix Thomsen, víti (87')
Rautt spjald: Andri Fannar Stefánsson, Valur (18')

Íslandsmeistarar Vals fóru með sigur af hólmi í Egilshöllinni í kvöld í leik gegn Víkingum frá Reykjavík.

Um var að ræða fyrsta leik Víkinga en annan leik Valsmanna í mótinu.

Víkingar byrjuðu betur og komust í 1-0 með marki frá Dananum Nikolaj Andreas Hansen eftir tæpan stundarfjórðung.

Útlitið varð dekkra fyrir Valsmenn þegar Andri Fannar Stefánsson fékk rautt spjald fjórum mínútum síðar.

Það átti þó ekki eftir að slá Valsmenn útaf laginu þar sem þeir jöfnuðu á 24.mínútu með marki frá Tobias Bendix Thomsen eftir undirbúning Kristins Inga Halldórssonar.

Staðan var jöfn í hálfleik en Valsmenn fengu víti á 87.mínútu sem Tobias Bendix Thomsen skoraði úr og tryggði þar með Valsmönnum sinn annan sigur í mótinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner