„Þetta er erfitt fyrir okkur. Við erum með fáa leikmenn og erum að treysta á marga unga leikmenn," sagði Pedro Hipólító, þjálfari Fram, við Fótbolta.net eftir 1-0 tapið gegn ÍBV í Lengjubikarnum í dag.
Sjö leikmenn á 2. flokks aldri byrjuðu inn á hjá Fram í leiknum í dag. Fá þeir líka sénsinn í Inkasso-deildinni í sumar?
„Ef að ungu leikmennirnir sýna gæði, hæfileika og rétta hugarfarið þá fá krakkarnir tækifæri. Það er mikilvægt fyrir félagið, Ísland og félagið líka."
Fram hefur samið við portúgalska miðjumanninn Tiago Fernandes og kantmanninn Mihajlo Jakimoski frá Makedóníu en þeir eru ekki komnir með leikheimild. Pedro er einnig að leita að frekari liðsstyrk.
„Við erum ennþá að leita að liðsstyrk. Við þurfum að velja vel til að fá bestu leikmennina fyrir þann peninga sem við eigum," sagði Pedro.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir