Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. mars 2017 22:00
Elvar Geir Magnússon
Pirraði Heimi og Helga að nöfn láku út
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var haldinn fréttamannafundur þar sem íslenski landsliðshópurinn fyrir komandi landsleik gegn Kosóvó var opinberaður.

Talsvert er um forföll í hópnum fyrir leikinn og var ljóst að talsverðar breytingar yrðu á hópnum frá síðasta mótsleik.

Fyrir leikinn láku út nöfn nokkurra leikmanna sem eru í hópnum og greindu fjölmiðlar frá þeim áður en hópurinn var opinberlega kynntur.

Helgi Kolviðsson, aðstoðarþjálfari, viðurkennir að þetta hafi aðeins pirrað sig og Heimi Hallgrímsson.

„Þetta á ekki við. Hvaðan þetta kemur, við erum ekki að reyna að rannsaka það eða velta okkur upp úr því hvaðan þetta kemur. Það er búið að vera nóg annað að gera undanfarna daga. Við erum að einbeita okkur að verkefnunum framundan," segir Helgi en viðtalið við hann er í heild í sjónvarpinu hér að neðan.

Sjá einnig:
Helgi Kolviðs: Getum því miður ekki pakkað mönnum í bómul núna
Helgi Kolviðs: Getum því miður ekki pakkað mönnum í bómull núna
Athugasemdir
banner
banner