Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 17. mars 2018 17:30
Gunnar Logi Gylfason
Conte er viss um að Chelsea haldi sínum bestu leikmönnum
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, er viss um að félagið haldi sínum bestu leikmönnum þó svo að liðinu mistakist að enda í efstu fjórum sætum deildarinnar og komist þar með ekki í Meistaradeildina.

Mikið hefur verið talað um að Eden Hazard haldi til Spánar og gangi til liðs við Real Madrid ef að Chelsea nær ekki Meistaradeildarsæti.

„Ekki gleyma því að fyrir tveimur árum endaði Chelsea í 10.sæti og margir núverandi leikmenn voru í liðinu þá," sagði Ítalinn.

"Þeir ákváðu að halda áfram að spila fyrir félagið."

„Þurfa leikmennirnir að axla ábyrgð? Þetta er alltaf það sama, þegar við unnum deildina og komumst í úrslit í bikarnum þá þurftum við að axla sameiginlega ábyrgð með félaginu, leikmennirnir, ég og starfsfólkið," sagði Antonio Conte að lokum.

Chelsea spilar gegn Leicester í 8-liða úrslitum bikarsins á morgun.
Athugasemdir
banner
banner