Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. mars 2018 16:56
Gunnar Logi Gylfason
England: Cenk Tosun hetja Everton í fjarveru Gylfa - WBA í vandræðum
Sjaldséður útisigur hjá Everton
Cenk Tosun skoraði bæði mörk Everton í dag
Cenk Tosun skoraði bæði mörk Everton í dag
Mynd: GettyImages
Charlie Adam fékk rautt spjald í dag
Charlie Adam fékk rautt spjald í dag
Mynd: Getty Images
Þremur leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni.

Bournemouth fékk neðsta lið deildarinnar, WBA, í heimsókn.
Botnliðið komst yfir í upphafi seinni hálfleiks með marki frá Jay Rodriguez og hélst forystan í tæpan hálftíma. Jordan Ibe jafnaði þá metin fyrir heimamenn.

Á 89. mínútu kom Junior Stanislas heimamönnum yfir þegar hann skoraði sigurmark leiksins.

Heimamenn eru um miðja deild en gestirnir í WBA sitja sem fastast á botni deildarinnar og þarf mikið að gerast svo liðið falli ekki.

Huddersfield fékk þá Crystal Palace í heimsókn. Wilfried Zaha kom til baka í byrjunarlið gestanna og það hefur gert þeim gott.

Á 23. mínútu kom varnarmaðurinn James Tomkins Palace yfir og tvöfaldaði Luka Milivojevic forystuna úr víti á 68. mínútu.

Með sigrinum komst Crystal Palace upp úr fallsæti en Huddersfield er að sogast í fallbaráttu.

Everton sigraði þá Stoke á útivelli þar sem Cenk Tosun var hetja gestanna.

Charlie Adam fékk rautt spjald fyrir tæklingu á Wayne Rooney eftir hálftíma leik.

Gestirnir voru þó tæpar fjörutíu mínútur að nýta sér liðsmuninn. Cenk Tosun skoraði þá en forystan entist ekki í nema 8 mínútur þegar Choupo-Moting jafnaði. Tosun kom Everton aftur yfir og þar við stóð, langþráður útisigur Everton.

AFC Bournemouth 2 - 1 West Bromwich Albion
0-1 Jay Rodriguez (49')
1-1 Jordan Ibe (77')
2-1 Junior Stanislas (89')

Huddersfield Town 0 - 2 Crystal Palace
0-1 James Tomkins (23')
0-2 Luka Milivojevic (víti) (68')

Stoke City 1 - 2 Everton
0-1 Cenk Tosun (69')
1-1 Eric Maxim Choupo-Moting (77')
1-2 Cenk Tosun (84')
Rautt spjald:Charlie Adam, Stoke (30')
Athugasemdir
banner
banner