Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 17. mars 2018 14:15
Gunnar Logi Gylfason
Enski bikarinn: Tottenham fór létt með Swansea
Eriksen skoraði tvö í dag
Eriksen skoraði tvö í dag
Mynd: Getty Images
Swansea 0 - 3 Tottenham
0-1 Christian Eriksen (11')
0-2 Erik Lamela (45')
0-3 Christian Eriksen (62')

Tottenham er komið í undanúrslit enska bikarsins eftir auðveldan sigur á Swansea.

Engu máli skipti þó að Harry Kane hafi ekki spilað með gestunum vegna meiðsla.

Christian Eriksen skoraði fyrsta mark leiksins eftir 11 mínútna leik.

Erik Lamela bætti öðru marki við undir leik fyrri hálfleiks og fóru gestirnir með þægilegt forskot inn í hálfleikinn.

Eriksen skoraði svo annað mark sitt og þriðja mark Tottenham á 62. mínútu og gulltryggði þar með sigur gestanna og sæti í undanúrslitum.
Athugasemdir
banner
banner