Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. mars 2018 17:27
Gunnar Logi Gylfason
Lengjubikarinn: HK kláraði Selfoss
Ásgeir skoraði tvö mörk í lokin fyrir HK
Ásgeir skoraði tvö mörk í lokin fyrir HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss 1-3 HK
0-1 Ingiberg Ólafur Jónsson (24')
0-2 Ásgeir Marteinsson (83')
0-3 Ásgeir Marteinsson (85')
1-3 Gilles Daniel Mbang Ondo (87')

HK-ingar sigruðu Selfyssinga í leik liðanna á Selfossi í dag.

Ingiberg Ólafur Jónsson kom gestunum frá Kópavogi yfir eftir 24 mínútur og hélst staðan lengi vel þannig.

Í lokin færðist heldur meira fjör í leikinn þar sem þrjú mörk voru skoruð á fjögurra mínútna kafla.

Ásgeir Marteinsson tvöfaldaði forystu gestanna á 83. mínútu og aðeins tveimur mínútum síðar gerði hann útaf við leikinn.

Gilles Daniel Mbang Ondo minnkaði muninn fyrir heimamenn á 87. mínútu en ekki voru fleiri mörk skoruð og sigur gestanna því staðreynd.

HK er í 3.sæti og Selfoss í því 5. en nú er leikur Þórs og FH í gangi svo það er ekki endilega endanleg niðurstaða riðilsins.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner