Þrír leikir voru á dagskrá í riðli 3 í A deild Lengjubikars karla í dag.
Víkingur Ólafsvík og Keflavík mættust í Akraneshöllinni. Ekki var mikið skorað og var staðan markalaus þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik. Fyrsta og eina mark leiksins kom á 79. mínútu en það gerði Gonzalo Zamorano Leon.
Ólafsvíkingar enda því í öðru sæti riðilsins en Keflvíkingar í því fjórða.
Haukar tóku á móti Fjölnismönnum að Ásvöllum þar sem liðin sættust á skiptan hlut. Gestirnir komust yfir með marki frá Antoni Frey Ársælssyni á 18.mínútu. Gylfi Steinn Guðmundsson jafnaði metin á þeirri 65.
Fjórum mínútu síðar fékk Sigurjón Daði Harðarson rautt spjald í liði Fjölnis. Þó voru ekki fleiri mörk skoruð og enda Fjölnismenn í 3.sæti riðilsins en Haukar í 5.sætinu.
Þá mættust Leiknir úr Breiðholtinu og Stjarnan úr Garðabæ í Kórnum í Kópavogi. Stjörnumenn fóru með 0-2 sigur af hólmi og enda í efsta sæti riðilsins og eru komnir í undanúrslit.
Leiknismenn enda hinsvegar í neðsta sætinu með aðeins eitt stig.

Víkingur Ó. 1-0 Keflavík
1-0 Gonzalo Zamorano Leon (79')
Haukar 1-1 Fjölnir
0-1 Anton Freyr Ársælsson (18')
1-1 Gylfi Steinn Guðmundsson (65')
Rautt spjald:Sigurjón Daði Harðarson, Fjölnir (69')
Leiknir R. 0-2 Stjarnan
0-1 Hilmar Árni Halldórsson (12')
0-2 Hilmar Árni Halldórsson (47')
Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir