Manchester United og Brighton mætast í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í kvöld.
Það hefur verið kalt á Englandi í dag og víða hefur snjóað og þar á meðal í Manchester þar sem leikur kvöldsins fer fram á Old Trafford.
Hér að neðan má sjá myndband þar sem má sjá vallarstarfsmenn á Old Trafford vera moka snjó af vellinum.
Flautað verður til leiks í viðureign Manchester United og Brighton klukkan 19:45 og leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Clearing the snow off the pitch at Old Trafford#MUFC @BBCRMsport pic.twitter.com/ddgYzxVoEX
-- ?I?? ?I?? ?? (@billrice23) March 17, 2018
Old Trafford is looking beautiful. #mufc pic.twitter.com/tCHeYXzO8s
— United Photos (@UtdPhotosHD) March 17, 2018
Athugasemdir