Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 17. mars 2018 23:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mourinho: Frammistaðan var ekki jafn góð og úrslitin
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho stýrði Manchester United í undanúrslit ensku bikarkeppninnar í kvöld, en liðið sigraði Brighton 2-0.

Mourinho var þrátt fyrir það ekki sáttur með frammistöðuna.

„Frammistaðan var ekki jafn góð og úrslitin, úrslitin voru betri en frammistaðan," sagði Mourinho.

„Við áttum sigurinn klárlega skilið, við stjórnuðum leiknum en spiluðum ekki vel."

„Strákarnir spiluðu ekki eins og ég vildi að þeir myndu spila, þeir spiluðu ekki eins og við höfðum sett upp fyrir leikinn."
Athugasemdir
banner
banner