Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 17. mars 2018 12:30
Gunnar Logi Gylfason
Petit: Pogba þarf að breyta viðhorfi sínu
Petit og Eiður Smári í leik með Chelsea á árum áður
Petit og Eiður Smári í leik með Chelsea á árum áður
Mynd: Getty Images
Paul Pogba
Paul Pogba
Mynd: Getty Images
Emmanuel Petit, fyrrum landsliðsmaður Frakklands, hefur sagt að landi sinn þurfi að breyta viðhorfi sínu til að komast úr lægðinni sem hann er í.

Paul Pogba hefur átt í erfiðleikum undanfarnar vikur og hefur byrjað á bekknum nokkrum sinnum, þar á meðal í tapleiknum gegn Sevilla í vikunni.

Þar kom Frakkinn inn á í seinni hálfleik en náði sér ekki á strik.

„Hann er að gera þetta persónulegt (milli sín og Mourinho) og það sést á neikvæðri líkamstjáningunni á vellinum þegar hann spilar."

Paul Pogba verður væntanlega í eldlínunni með Manchester United í enska bikarnum í kvöld gegn Brighton, en hvort hann byrji inn á kemur í ljós í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner