KR vann Fylki 3-1 í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins í dag. KR mætir FH í undanúrslitum á mánudag.
Fótbolti.net ræddi við Ásmund Arnarsson, þjálfara Fylkis, eftir tapið í dag.
Fótbolti.net ræddi við Ásmund Arnarsson, þjálfara Fylkis, eftir tapið í dag.
„Við gerðum þetta full þægilegt fyrir KR-ingana og færðum þeim of ódýr mörk. Það er alltaf erfitt að brjóta þá á bak aftur. Svo við gerðum okkur sjálfur þetta erfitt fyrir," sagði Ásmundur.
„Það var ágætis holning á liðinu lengst af en mér fannst við geta verið aggressífari við þá. Þetta var full þægilegt fyrir KR-inga."
Nú styttist í mót. Hvernig er standið á hópnum hjá Fylki?
„Það er allt í lagi. Við verðum klárir þegar fyrsti leikur hefst. Það eru einhverjir frá vegna meiðsla. Þetta tínist inn hjá okkur."
Fylkir er enn í leit að sóknarmanni til að fylla skarðið sem Viðar Örn Kjartansson skildi eftir sig þegar hann fór út í atvinnumennsku.
„Við höfum verið að skoða þau mál en enginn náð að heilla okkur almennilega. Eins og staðan er þá er þetta hópurinn okkar. Við sjáum hvernig þetta þróast. Við tökum ekki bara einhvern, hann verður að passa inn."
Er tilfinningin fyrir sumrinu góð?
„Það er alltaf í bland tilhlökkun og stress. Við verðum að sjá hvernig þetta líður. Við erum allavega brattir í Árbænum. Það er mikill metnaður í þessum hóp og það er gaman að vinna þegar slíkt er til staðar," sagði Ásmundur en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir