Allt lítur út fyrir að hinn efnilegi Julian Draxler verði ekki seldur frá Schalke í sumar þrátt fyrir áhuga frá stórliðum í Evrópu.
Þessi þýski landsliðsmaður hefur lengi verið orðaður við bæði Arsenal og FC Bayern, en á síðustu mánuðum hafa bæði lið gefið það í skyn að þau muni ekki reyna að kaupa Draxler í sumar.
,,Draxler verður áfram hjá félaginu okkar, nema þá að eitthvað ótrúlegt gerist í sumar," sagði Clemens Tonnies, stjórnarformaður Schalke.
,,Eftir næsta tímabil munum við sjá til. Ég er hinsvegar sannfærður um að hann muni spila fyrir Schalke lengur en næsta tímabil."
Samningur Draxler rennur út sumarið 2018. Í samningi hans er klásúla sem leyfir honum að fara fyrir 40 milljónir punda.
Athugasemdir