Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. apríl 2014 16:33
Daníel Freyr Jónsson
Mario Götze segir Marco Reus vilja fara til Man Utd
Marco Reus og Mario Götze hita upp saman hjá Dortmund.
Marco Reus og Mario Götze hita upp saman hjá Dortmund.
Mynd: Getty Images
Mario Götze, leikmaður FC Bayern, segir að sinn fyrrum samherji Marco Reus hafi alltaf dreymt um að fara til Manchester United.

Tvímenningarnir léku saman hjá Borussia Dortmund á síðasta tímabili áður en Götze gekk í raðir Bayern.

Götze fullyrðir að Reus hafi þá viljað ganga í raðir United og að ekkert hafi breyst í þeim efnum.

,,Þegar ég var hjá Borussia, þá vildi Marco fara til Manchester United. Það hefur ekki breyst," sagði Götze.

United er sagt fylgjast náið með Reus, en hann hefur verið í fínu formi undanfarið og skoraði til að mynda bæði mörk liðsins í 2-0 sigri á Real Madrid í síðustu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner