fim 17. apríl 2014 10:30
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo vonast til að ná leikjunum gegn Bayern
Cristiano Ronaldo vonast til að ná leikjunum gegn Bayern
Cristiano Ronaldo vonast til að ná leikjunum gegn Bayern
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid á Spáni, vonast til þess að missa ekki af undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu er liðið mætir Bayern München.

Madrídingar mæta Bayern München í næstu viku í fyrri undanúrslitaleik Meistaradeildar Evrópu en Ronaldo hefur verið meiddur undanfarna daga.

Hann var ekki í liðinu í gær er Real Madrid varð spænskur bikarmeistari og þá missti hann einnig af síðari leik liðsins gegn Borussia Dortmund í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Ronaldo vonast þó til þess að verða klár fyrir leikinn gegn Bayern í næstu viku.

,,Ég er mjög svo ánægður. Ég vildi spila og hjálpa liðinu en liðsfélagar mínir stóðu sig vel. Ég er að verða betri og finn engan sársauka lengur," sagð Ronaldo.

,,Ég verð líklega kominn aftur fyrir miðvikudaginn er Real Madrid mætir Bayern eða þá síðari leikinn í einvíginu," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner