Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. apríl 2015 19:00
Elvar Geir Magnússon
Hefur Del Piero leikið sinn síðasta leik?
Alessandro Del Piero. Goðsögn.
Alessandro Del Piero. Goðsögn.
Mynd: Getty Images
Bróðir Alessandro Del Piero segir ómögulegt að segja hvenær eða hvort við fáum að sjá þessa Juventus goðsögn aftur á fótboltavellinum.

Sóknarmaðurinn reyndi er á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið indverska félagið Dehli Dynamos og þrátt fyrir að hafa verið orðaður við lið í MLS-deildinni er ekkert frágengið.

„Mun Del Piero snúa aftur á völlinn? Ég get ekkert sagt til um það. Hann er í Bandaríkjunum núna og er að æfa. Hann vill halda sér í formi ef eitthvað gerist. Í fótboltanum eru mörg hlutverk. Hann gæti orðið leikmaður, þjálfari eða ráðgjafi. Það eru margar leiðir til að nýta reynslu hans," segir Stefano Del Piero sem er umboðsmaður Alessandro.

„Líður honum enn sem fótboltamanni? Meisturum líður alltaf eins og fótboltamönnum, jafnvel 50 ára."
Athugasemdir
banner
banner
banner