Heimild: Sky
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur staðfest að félagið eigi í viðræðum við Yaya Sanogo framherja Auxerre.
Þessi tvítugi framherij hefur skorað níu mörk í ellefu leikjum í frönsku B-deildinni með Auxerre.
Þessi tvítugi framherij hefur skorað níu mörk í ellefu leikjum í frönsku B-deildinni með Auxerre.
Samningur hans rennur út í sumar og talið er að Sanogo sé nálægt því að skrifa undir fjögurra ára samning við Arsenal.
,,Við erum í viðræðum en það er ekkert klárt," sagði Wenger aðspurður út í Sanogo.
Þar sem Sanogo er yngri en 23 ára mun Arsenal þurfa að borga uppeldisbætur fyrir leikmanninn.




