Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 17. maí 2013 16:19
Magnús Már Einarsson
Arsenal og Chelsea gætu leikið um 3. sætið um næstu helgi
Enska úrvalsdeildin hefur staðfest að sérstakur úrslitaleikur um 3. sætið í ensku úrvalsdeildinni muni fara fram á Villa Park sunnudaginn 26. maí ef Arsenal og Chelsea enda jöfn í deildinni.

Ef Chelsea gerir 0-0 jafntefli í lokaumferðinni um helgina og Arsenal vinnur 2-1 verða liðin jöfn á stigum, markamun og mörkum skoruðum.

Þá munu liðin mætast á hlutlausum velli í úrslitaleik um það hvort liðið fer beint í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Chelsea er í þriðja sæti sem stendur, tveimur stigum á undan Arsenal. Chelsea fær Everton í heimsókn á Stamford Bridge á sunnudag á meðan Arsenal ferðast til Newcastle.

Liðin sem enda í þremur efstu sætum úrvalsdeildarinnar komast beint í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liðið í fjórða sæti hefur keppni í þriðju umferð forkeppninnar.

Liðin enda hnífjöfn ef þetta verða úrslitin:
Chelsea jafntefli 0-0; Arsenal vinnur 2-1
Chelsea jafntefli 1-1; Arsenal vinnur 3-2
Chelsea jafntefli 2-2; Arsenal vinnur 4-3
Chelsea jafntefli 3-3; Arsenal vinnur 5-4
Slapp
banner