Beint á SportTv klukkan 12:30 á föstudögum
Annar þáttur af sjónvarpsþættinum Fótbolta.net er á dagskrá í dag en þátturinn er á dagskrá á SportTv klukkan 12:30 á föstudögum og sýndur bæði á netinu og í sjónvarpi.
Hver þáttur er um 40 mínútur að lengd en umsjónarmenn eru Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðarsson.
Hver þáttur er um 40 mínútur að lengd en umsjónarmenn eru Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðarsson.
Dagskrá í þætti tvö:
- Guðmundur Steinarsson kemur í heimsókn og fer yfir fyrstu umferðirnar í Pepsi-deildinni.
- Gunnar Sigurðarson, Gunnar á völlum, kemur og ræðir um nýliðana í Víkingi frá Ólafsvík.
- Hans Steinar Bjarnason, íþróttafréttamaður, mætir og borðar tómat.
Fjallað verður vel um 1.deildina í þættinum í sumar en þar sem að ekki var leikið í henni í vikunni verður hlé á þeirri umfjöllun í dag.
Þátturinn er í beinni vefútsendingu á SportTv.is og einnig sýndur í sjónvarpi á rás 17 í sjónvarpi Símans og 800 hjá Vodafone. Upptaka af honum verður svo sett inn á heimasíðu SportTv
Áhorfendur geta tekið þátt og komið með uppástungur að umræðuefni með því að hafa samband á @SoliHolm á Twitter.



