Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 17. maí 2013 11:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Heimild: Inside Spanish Football 
Barcelona nær samkomulagi um Neymar
Barcelona hefur náð samkomulagi við fjárfestingarfélagið DIS um brasilíska undrabarnið Neymar, en DIS á 40 prósent hlut í leikmanninum.

Samkvæmt ESPN í Brasilíu, fundaði Barcelona við DIS í Sao Paulo í gærkvöldi um ein stærstu félagaskipti sumarsins.

Nánari upplýsingar hafa ekki verið gefnar út en beðið er eftir opinberri tilkynningu.

Talið er að DIS fái 20 milljónir evra fyrir sinn hlut. Þá hefur Barcelona þegar náð samkomulagi við TEISA, annað fjárfestingafélag, sem á fimm prósent hlut í Neymar.

Þannig mun Barcelona eiga 45 prósent hlut í leikmanninum, en sjálfur á hann tíu prósent. Ef Neymar samþykkir að ganga í raðir Barcelona hefur félagið þá tryggt sér 55 prósent hlut í brasilíska landsliðsmanninum.

Því næst myndi Barcelona hefja viðræður við Santos, félagslið Neymar, sem á 45 prósent hlut honum.

Barcelona hefur lengi verið á höttunum eftir Neymar en nú gætu félagaskiptin allt í einu gengið hratt fyrir sig.
Slapp
banner
banner