Færeyski miðjumaðurinn Karl Abrahamsson Løkin er hættur í Víking Ólafsvík eftir stutta dvöl hjá liðinu. Í upphafi mánaðarins gekk hann í raðir Ólafsvíkinga.
Hann var ónotaður varamaður í fyrstu tveimur leikjum liðsins í Pepsi-deildinni.
Hann var ónotaður varamaður í fyrstu tveimur leikjum liðsins í Pepsi-deildinni.
Í tapleiknum gegn Keflavík í gær var Arnar Már Björgvinsson svo mættur í treyju númer sex en það var númerið sem Karl fékk.
Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net reyndi Karl að koma sér að í öðru liði hér á landi áður en félagaskiptaglugganum var lokað en það tókst ekki.
Víkingur er án stiga eftir fyrstu þrjár umferðir Pepsi-deildarinnar en stuðningsmenn liðsins geta glaðst yfir því að stutt er í að sóknarmaðurinn Guðmundur Magnússon snúi aftur á völlinn. Hann þarf ekki að fara í aðgerð eins og talið var og hefur fengið grænt ljós á að hefja æfingar á nýjan leik.



