Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 17. maí 2013 15:25
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Ferguson og Bale bestir í ensku úrvalsdeildinni
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur verið valinn knattspyrnustjóri tímabilsins ensku úrvalsdeildinni.

Ferguson stýrði Manchester United til sigurs í ensku úrvalsdeildinni í 13. skipti á þessu tímabili.

Ferguson þekkir það vel að vera valinn stjóri tímabilsins en þetta er í ellefta skipti sem hann vinnur þessi verðlaun.

Gareth Bale, leikmaður Tottenham, hefur verið valinn leikmaður tímabilsins í úrvalsdeildinni.

Bale hefur skorað 19 mörk á tímabilinu en hann var á dögunum einnig valinn besti leikmaðurinn í vali leikmannasamtakanna sem og bestur í vali fréttamanna.
Slapp
banner
banner