Ásgeir Börkur Ásgeirsson fékk sex rétta þegar hann spáði í leikina í næstsíðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi.
Heiðar Austmann, útvarpsmaður á FM 957, spáir í leikina í lokaumferðinni en spá hans má sjá hér að neðan.
Heiðar Austmann, útvarpsmaður á FM 957, spáir í leikina í lokaumferðinni en spá hans má sjá hér að neðan.
Chelsea 1 - 1 eða 2 - 2 Everton
Chelsea nægir eitt stig til að tryggja sig endanlega í Meistaradeildina og ég held að leikurinn endi í jafntefli í bráðfjörugum leik.
Liverpool 3 - 0 QPR
Mínir menn í LFC hafa verið í feiknarformi í síðustu leikjum (hvað eru nokkur jafntefli á milli vina). Þeir halda uppteknum hætti og slátra liði QPR sem hafa að engu að keppa. Sturridge verður maður leiksins.
Manchester City 1 - 0 Norwich
Mancini að fara frá City og leikmenn liðsins að bíða eftir nýjum þjálfara. Mér segir sá hugur að mórallinn sé slæmur hjá City en þeir ná samt sem áður að kreista út 3 stig úr leiknum gegn baráttuglöðu liði Norwich.
Newcastle 1 - 3 Arsenal
Newcastle er hvorki fugl né fiskur um þessar mundir og leikmenn liðsins væntanlega fegnir þegar þessari rússíbanareið sem er þessi leiktíð verður lokið. Þeir enda leiktíðina á tapi og Arsenal sigrar, það dugar Arsenal til að komast í umspil í CL.
Southampton 2 - 1 Stoke
Ég spái því að þetta verði leiðinlegasti leikur umferðarinnar. Hvorugt liðið hefur að einhverju að keppa og ber leikurinn það með sér. Eitt mark mun skilja liðin að þegar uppi verður staðið.
Swansea 2 - 0 eða 2 - 1 Fulham
Fulham halda áfram að vera með hvellskitu í deildinni og leggja nákvæmlega ekkert í þennan leik frekar en síðustu 5-6 leiki liðsins. Skrif mín gefa það sterklega í skyn að Fulham sé ekki í miklu uppáhaldi sem er alveg rétt þar sem þeir eru löngu hættir og það fýla ég engan veginn. Swansea klárar þetta.
Tottenham 3 - 1 Sunderland
Leikmenn Tottenham leggja allt í sölurnar og vonast til þess að erkifjendurnir í Arsenal misstígi sig í sínum leik. Þeir koma dýrvitlausir í leikinn og klára Sunderland nánast auðveldlega. DiCanio rennir sér á hnjánum í leiknum. Staðfest !!
WBA 1 - 2 Manchester United
Spái því að þetta verði einnig hundleiðinlegur leikur. WBA vilja auðvitað vinna á heimavelli og leikmenn Man Utd vilja vinna síðasta leik Alex Ferguson. Niðurstaðan verður þannig að Man Utd hefur betur í leik þar sem áhorfendur sjá eftir því að hafa ekki gert eitthvað annað við tímann sinn.
West Ham 1 - 0 Reading
West Ham stuðningsmenn væntanlega í skýjunum yfir því að Big Sam verði áfram með liðið (sagði enginn) þannig að þeir verða í stuði eftir nokkur glös af söngolíu fyrir leik. West Ham klárar þetta með sigri í síðasta leik og Andy Carroll skorar sigurmarkið eftir stoðsendingu frá Kevin Nolan.
Wigan 0 - 0 Aston Villa
Það merkilegasta við þennan leik verður þegar leikmenn taka í höndina á hvorum öðrum fyrir leik. Meira held ég að gerist ekki. Steindautt jafntefli.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Teitur Örlygsson (7 réttir)
Ívar Guðmundsson (7 réttir)
Guðjón Guðmundsson (7 réttir)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (6 réttir)
Nigel Quashie (6 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Bjarni Fel (5 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Þórður Guðjónsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Edda Garðarsdóttir (3 réttir)
Gary Martin (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Björn Daníel Sverrisson (2 réttir)
Daníel Rúnarsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)

