Heimild: Football Italia
Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum hefur Liverpool augastað á Ishak Belfodil, sóknarmanni Parma.
Þessi tvítugi Alsíringur með franskt ríkisfang hefur spilað reglulega með Parma á leiktíðinni og skorað sjö mörk í 28 leikjum.
Þessi tvítugi Alsíringur með franskt ríkisfang hefur spilað reglulega með Parma á leiktíðinni og skorað sjö mörk í 28 leikjum.
Greint hefur verið frá því að Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, hafi sent njósnara til að fylgjast með Belfodil í að minnsta kosti þremur leikjum.
Aftur á móti er Liverpool ekki eina félagið úr ensku úrvalsdeildinni sem hefur áhuga á leikmanninum því talið er að Tottenham og Everton eru einnig með hann undir smásjánni.



