Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 17. maí 2013 19:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: Mark Pálma og flikk-flakk innkast Steinþórs
Pálmi Rafn Pálmason.
Pálmi Rafn Pálmason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandnes Ulf og Lilleström gerðu 2-2 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í gær.

Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrra mark Lilleström í leiknum með fallegu skoti fyrir utan teig.

Marius Helle kom Sandnes Ulf í 2-1 í síðari hálfleik eftir flikk-flakk innkast frá Steinþóri Frey Þorsteinssyni.

Steinþór Freyr hafði ekki mikið pláss til að taka innkastið en hann kastaði þrátt fyrir það langt inn á teiginn.

Hér að neðan má sjá myndband með atvikum úr leiknum. Mark Pálma kemur eftir um það bil eina mínútu og 10 sekúndur en innkastið kemur eftir um tvær mínútur og 45 sekúndur.

Smelltu hér til að sjá myndbandið
Slapp
banner
banner