Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 17. maí 2013 16:17
Elvar Geir Magnússon
Sir Alex fékk lófaklapp og hárblásara-köku
Mynd: The Sun
Sir Alex Ferguson er frægur fyrir hinn svokallaða „hárblásara" sinn en þegar hann er ósáttur við frammistöðu leikmanna sinna lætur hann menn heyra það í klefanum.

Í morgun hélt Ferguson fréttamannafund fyrir leik gegn West Bromwich Albion sem fram fer á sunnudag. Var þetta hans síðasti fréttamannafundur fyrir leik þar sem hann lætur af störfum sem knattspyrnustjóri.

Neil Custis, fréttamaður The Sun, færði Ferguson glæsilega hárblásara-köku í tilefni af þessum tímamótum.

Ferguson fékk höfðinglegar móttökur þegar hann mætti í salinn og klöppuðu fjölmiðlamenn fyrir honum eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.


Slapp
banner
banner