Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 17. maí 2013 22:13
Sebastían Sævarsson Meyer
Spánn: Atletico Madrid vann bikarinn - Ronaldo fékk rautt
Jose Mourinho sendur upp í stúku
Real Madrid 1 - 2 Atletico Madrid
1-0 Cristiano Ronaldo ('13)
1-1 Diego Costa ('34)
1-2 Miranda ('98)
Rauð spjöld: Cristiano Ronaldo, Real Madrid ('114), Gabi, Atletico Madrid ('125)

Atletico Madrid kom, sá og sigraði á Santiago Bernabeu í kvöld þegar liðið vann spænska Konungsbikarinn eftir 2-1 sigur á Real Madrid í framlengdnum leik.

Leikurinn var ansi fjörugur og af og til hitnaði verulega í kolunum. Jose Mourinho var sendur upp í stúkur fyrir mótmæli á 75. mínútu og í framlengingunni fékk Cristiano Ronaldo að líta beint rautt spjald. Einnig var Gabi rekinn af velli í liði Atletico Madrid eftir tvö gul spjöld.

Leikurinn byrjaði þó vel fyrir Ronaldo en hann kom Real Madrid yfir á 13. mínútu með góðum skalla eftir hornspyrnu frá Mesut Özil.

Atletico jafnaði leikinn á 34. mínútu en þar var að verki Diego Costa eftir góða stungusendingu frá Radamel Falcao.

Staðan var því jöfn í hálfleik en ekkert mark var skorað í seinni hálfleik þrátt fyrir góð færi. Junfran bjargaði meðal annars á marklínu fyrir Atletico Madrid og aukaspyrna Ronaldo hafnaði í stönginni. Því þurfti að grípa til framlengingar.

Þegar átta mínútur voru liðnar af framlengingunni komst Atletico Madrid yfir með marki frá Miranda, en hann skallaði knöttinn í netið eftir fyrirgjöf frá Koke.

Real Madrid reyndi að knýja fram vítaspyrnukeppni á lokamínútunum og fékk tvö góð færi til þess að jafna en Thibaut Courtois varði vel í marki Atletico Madrid.

Það fór síðan allt úr böndunum á 114. mínútu þegar Cristiano Ronaldo var vikið af velli fyrir að sparka í andlit Gabi. Við það reiddust stuðningsmenn Real Madrid og köstuðu ýmsum hlutum á völlinn. Thibaut Courtois fékk hlut í höfuðið og lá eftir á vellinum.

Fimm mínútum var bætt við framlenginguna en ekki tókst Real Madrid að jafna leikinn og lokatölur 2-1 sigur Atletico Madrid, en þetta er í tíunda sinn sem liðið vinnur keppnina. Real Madrid lýkur tímabilinu án titils.
Slapp
banner
banner