Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 17. maí 2013 22:03
Magnús Valur Böðvarsson
Umfjöllun: Sanngjarn HK sigur í Kópavogi
Guðmundur Atli Steinþórsson skoraði sigurmarkið og brenndi af tveim dauðafærum
Guðmundur Atli Steinþórsson skoraði sigurmarkið og brenndi af tveim dauðafærum
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
HK 1 - 0 ÍR
1-0 Guðmundur Atli Steinþórsson (víti 8')

HK og ÍR mættust í kvöld í 2.deild karla á Kópavogsvelli. HK hafði tapað í fyrstu umferð fyrir liði KV á meðan ÍR ingar stálu stigunum þrem gegn liði Gróttu.

Fyrri hálfleikurinn lofaði afar góðu og komust HK ingar yfir strax á 8.mínútu þegar Guðmundur Atli Steinþórsson skoraði úr vítaspyrnu. Magnús Þór Magnússon markvörður ÍR inga var þó hársbreidd frá því að verja víti en inn fór boltinn.

ÍR ingar voru nálægt því að jafna metin um miðjan fyrri hálfleik þegar Jón Gísli Ström átti frábæra aukaspyrnu sem Beitir Ólafsson markvörður HK marði meistaralega í horn.

HK ingar fengu svo algjört dauðafæri til að bæta við marki þegar Ásgeir Marteinsson sendi frábæra stungusendingu innfyrir á Guðmund Atla sem var sloppinn einn í gegn en Magnús Þór varði á ótrúlegan hátt og aftur varði Magnús frábærlega nokkrum mínútum seinna en í þetta skiptið frá Ásgeiri sem var kominn í gott færi. ÍR ingar voru því stálheppnir að vera ekki 2 mörkum undir hálfleik.

ÍR ingar komu ákveðnir inní síðari hálfleikinn en gekk erfiðlega að koma sér í góð færi þrátt fyrir nokkuð efnilegar sóknir. Það fór smám saman að bitna á varnarleiknum og sluppu ÍR ingar með skrekkinn þegar Magnúsi varð á hrikaleg mistök og gaf boltann beint á Guðmund Atla sem var einn á móti Magnúsi en aftur varði Magnús á hreint ótrúlegan hátt.

ÍR ingar ákváðu að fækka í vörninni og fengu HK ingar fín tækifæri til að bæta við marki en allt kom fyrir ekki. ÍR ingar fengu svo gullið tækifæri til að jafna leikinn undir lokinn þegar varamaðurinn Arnór Björnsson komst í gott færi en Beitir Ólafsson varði skot hans.

Stuttu seinna var flautað til leiksloka og sigur HK sanngjarn og ÍR ingar í raun og veru stálheppnir að tapa ekki stærra og getað þakkað besta manni vallarins markverði sínum Magnúsi Þór Magnússyni að ekki fór verr.
Slapp
banner