Tómas Meyer á Stöð 2 Sport var best klæddi fjölmiðlamaður umferðarinnar. Var í Eurovision-skapi og gaf Smalanum frá Mývatni kassa af Pepsi.
Líkt og síðustu ár gerir Fótbolti.net upp umferðir Pepsi-deildarinnar á skemmtilegan hátt. Þetta er allt til gamans gert. Þriðja umferðin fór öll fram á einu bretti í gær.
Einkenni umferðarinnar: Eurovision
Eyþór var að keppa í undankeppni Eurovision á sama tíma og leikirnir fóru fram og hafði það neikvæð áhrif á mætinguna. Vallarþulir voru þó vel með á nótunum, brot úr laginu hans Eyþórs var spilað í hálfleik á KR-velli og maðurinn með hljóðnemann á Kópavogsvelli tilkynnti glaður þegar ljóst var að Ísland væri komið áfram.
Leikur umferðarinnar: Breiðablik 4 - 1 ÍA
Allir þrír leikir Blika hafa endað 4-1. Leikur liðsins gegn ÍA í gær var verulega sérstakur vægast sagt. Skagamenn voru 1-0 yfir eftir 82 mínútur en spilamennska þeirra hrundi eins og spilaborg á lokasprettinum. Sem betur fer fyrir ÍA er fótboltaleikur ekki 100 mínútur, þá hefði farið miklu verr!
Þjálfari umferðarinnar: Zoran Ljubicic
Eftir að hafa lent undir í Ólafsvík náðu Keflvíkingar að snúa dæminu við og vinna sín fyrstu stig á tímabilinu. Magnús Þórir Matthíasson kom inn sem varamaður og við það breyttist leikur Keflvíkinga til hins betra.
Mark umferðarinnar: Víðir Þorvarðarson
Víðir er fullur sjálfstrausts og skoraði ansi snyrtilegt mark og jafnaði fyrir ÍBV gegn FH. Aðdragandinn einnig þrusuflottur.
Buff umferðarinnar: Víðir Þorvarðarson
Vinnur þennan flokk aðra umferðina í röð. Var með appelsínugult buff að þessu sinni. „Þetta er ermi af bolnum hennar mömmu sem ég klippti af. Þetta þjónar sínum tilgangi og heldur hárinu frá andlitinu. Ég sá reyndar í Pepsimörkunum mann í bleikri skyrtu með grænt bindi kommenta á þetta en fyrir mér er aðalatriðið að þetta virki. Ég hlýt að halda mig við þetta buff núna," sagði Víðir við mbl.is.
Ekki lið umferðarinnar:
Páll Gísli (ÍA)
Einar Logi (ÍA) - Luba (Víkingur) - Nesta (Valur) - Vrenko (Þór)
Beslija (Þór) - Heiðar Geir (Fylkir) - Jón Vilhelm (ÍA)
Ingimundur Níels (FH) - Leskovar (Víkingur) - Chuck (Þór)
Ekki rifrildi umferðarinnar: Rúnar og Kristinn
Í stöðunni 1-1 í leik Vals og Fram fengu Valsmenn vítaspyrnu. Kristinn Freyr Sigurðsson fór á punlktinn en skaut í stöngina. Í aðdragandanum virtist hann deila við Rúnar Má Sigurjónsson um hvor ætti að taka spyrnina. Rúnar skrifaði á Twitter að engar deilur hafi átt sér stað:
„Reifst aldrei við Kidda. Erum bestu vinir og ræddum málin, hann er frábær vítaskytta. Styð Kidda í öllu og hann gæti vel tekið næsta víti."
Sturta umferðarinnar: Páll Viðar Gíslason
Meðan fjölmiðlamenn biðu eftir að Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, gæfi kost á sér í viðtöl eftir tapleikinn gegn KR var þeim tilkynnt að hann væri á leiðinni, væri bara að klára sturtu.
Pirringur umferðarinnar: Páll Viðar Gíslason
Páll Viðar er ósáttur við umfjöllun fjölmiðla um leikmenn sína og lét það í ljós í viðtali við Stöð 2 Sport. Tómas Ingi sagði í Pepsi-mörkunum að Guiseppe Funicello væri að sínu mati slakasti leikmaður deildarinnar.
Heppni umferðarinnar: Nesta Matarr Jobe
Með ólíkindum má telja hvernig dómarinn Valgeir Valgeirsson gat sleppt því að reka Nesta af velli í fyrri hálfleik Vals og Fram. Nesta var úti á þekju, hafði brotið af sér á glórulausan hvað eftir annað. Magnús Gylfason tók hann á endanum útaf á 40. mínútu.
Dómari umferðarinnar: Gunnar Jarl
Jarlinn hefur reyndar oft dæmt meira krefjandi leiki en KR - Þór en hann steig ekki feilspor í Vesturbænum.


