Victor Valdes, markvörður Barcelona, virðist vera á leið frá félaginu og er hann sagður hafa náð samkomulagi við Monaco, sem er ný búið að tryggja sér sæti í frönsku úrvalsdeildinni að nýju.
Samkvæmt Sky Italia hefur hann samþykkt að ganga í raðir Monaco í sumar. Rússneski milljarðamæringurinn Dmitry Rybolovlev, eigandi Monaco, er sagður ætla eyða að minnsta kosti 100 milljónum evra í nýja leikmenn í sumar.

Samningur Valdes hjá Barcelona rennur út 2014 og ætlar hann sér ekki að framlnegja samninginn. Því hefur Barcelona ákveðið að selja markvörðinn í sumar og nota peninginn í að finna eftirmann hans.
Nú er það undir Monaco og Barcelona komið að komast að samkomulagi um kaupverð, en Valdes hefur verið einn farsælasti markvörður Barcelona frá upphafi.