Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 17. maí 2013 21:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Villas-Boas: Bale á að halda áfram hjá okkur
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur ítrekað að hann vilji halda Gareth Bale hjá félaginu, sama hvað.

Bale hefur dregið vagninn í liði Tottenham á leiktíðinni og skorað 20 mörk. Hefur hann verið orðaður við bröttför frá félaginu, sérstaklega ef liðinu mistekst að komast í Meistaradeildina.

,,Ég er ekki viss hvað gerist, en við viljum að leikmaðurinn haldi áfram hjá okkur," sagði Villas-Boas.

,,Við höfum tekið það skýrt fram. Við viljum hafa hann hann hjá okkur á næstu leiktíð."

Þá hefur David Villa, sóknarmaður Barcelona verið orðaður við Tottenham og vildi Villas-Boas ekki útiloka þann möguleika.

;,David Villa er einn besti sóknarmaður heims," sagði hann.
Slapp
banner